Það eru sex norræn flugfélög skráð á hlutabréfamarkað og í þarsíðustu viku lækkaði gengi allra nema íslensku flugfélaganna. Í vikunni sem nú er senn á enda var þróunin önnur.
Hástökkvari vikunnar voru hlutabréfin í Norwegian sem hækkuðu um 8,6 prósent. Markaðsvirði SAS og Icelandair fór líka upp á við en aftur á móti lækkuðu bréfin í hinum þremur. Mest hjá Flyr og ennþá er gengi hlutabréfa í því félagi töluvert frá útboðsgenginu sem var 5 norskrar krónur á hlut í mars sl.