Covid-smitum fer fjölgandi og stjórnvöld víða um Evrópu hafa brugðist við því síðustu daga. Óhætt er að fullyrða að ástandið ýtir ekki undir bókanir á ferðalögum og því skiljanlegt að gengi allra norrænu flugfélaganna hafi dalað í vikunni.
Hún var þó mismikil eins og gefur að skilja en líkt og síðustu vikur þá leiðir hið nýja norska lággjaldaflugfélag Flyr lækkanirnar. Gengi félagsins lækkaði um fimmtán prósent í vikunni og samtals nemur niðursveiflan um fjörutíu af hundraði nú í nóvember. Skýringin á því liggur þó ekki bara í útbreiðslu kórónaveirunnar heldur líka þeirri staðreynd að Flyr þarf meira fé frá eigendum sínum og efnt verður til nýs hlutafjárútboðs í byrjun næsta árs.
Hér heima lækkaði gengi Icelandair meira en Play eins og sjá má.