Samfélagsmiðlar

Segja vetrarþjónustu ábótavant við ferðamannastaði

Markaðsstofa Norðurlands kallar eftir bættri vetrarþjónustu við vegi á Norðurlandi, þar á meðal á Vatnsnesvegi sem liggur að Hvítserki.

Stjórn Markaðsstofu Norðurlands telur það óásættanlegt að vetrarþjónustu að vegum á ferðamannastöðum á Norðurlandi sé jafn ábótavant og raun ber vitni. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á síðasta stjórnarfundi MN og sagt er frá í fréttatilkynningu.

Þar er sérstaklega bent á vetrarþjónustu á Vatnsnesvegi að Hvítserk og á Demantshringnum sem var formlega opnaður á síðasta ári, um það leyti sem nýr og uppbyggður vegur var opnaður frá Dettifossi að Ásbyrgi.

„Ástandið er í hróplegu ósamræmi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda um jafna árstíðasveiflu í ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan hefur upplifað mikil áföll undanfarin misseri og ríður á vaðið að ryðja úr vegi hindrunum sem koma í veg fyrir viðspyrnu í greininni, enda eykur góð vetrarþjónusta líkurnar á verðmætasköpun í ferðaþjónustu. Skortur á vetrarþjónustu stofnar öryggi vegfarenda í óþarfa hættu og ætti að vera forgangsmál að bæta þar úr til að tryggja öryggi og upplifun gesta og íbúa. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands skorar á ríkisvaldið að bæta til muna vetrarþjónustu á vinsælum ferðamannastöðum á svæðinu og horfa þar sérstaklega til nýopnaðs Demantshrings og Vatnsnesvegar að Hvítserk,” segir í ályktuninni.

Í markaðssetningu á áfangastaðnum Norðurlandi skipta samgöngur gríðarlega miklu máli og þá sérstaklega með tilliti til vetrarferðaþjónustu. Áfangastaðir á borð við Hvítserk, Dettifoss og Ásbyrgi eru eftirsóttir hjá erlendum ferðaskrifstofum og ferðamönnum allan ársins hring. MN hefur fundið fyrir þessum mikla áhuga á ferðakaupstefnum erlendis og því er til mikils að vinna að koma á bættri vetrarþjónustu á Norðurlandi.

Nýtt efni

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …

Xiaomi er hraðvaxta hátæknifyrirtæki í Beijing í Kína, stofnað fyrir 14 árum af frumkvöðlinum og milljarðamæringnum Lei Jun og félögum hans. Á síðasta ári var fyrirtækið í þriðja sæti á lista þeirra sem seldu flesta farsímana - næst á eftir Samsung og Apple. Xiaomi framleiðir og selur margskonar annan háþróaðan tæknibúnað og neytendavörur en samdráttur …

Fyrir rúmu ári var greint frá því að þýska Lufthansa-samsteypan hefði áhuga á að kaupa 40 prósenta hlut í ítalska þjóðarflugfélaginu ITA en niðurstaða hefur ekki enn fengist. Í janúar hóf Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins rannsókn á samkeppnisáhrifum þess að Þjóðverjarnir eignuðust stóran hlut í ítalska flugfélaginu sem lengi hefur verið stjórnvöldum á Ítalíu höfuðverkur.  Nú í …

Fyrir mánuði sendi Storytel frá sér fréttatilkynningu þar sem kynnt var ný þjónusta fyrir notendur. Brátt eiga hlustendur hljóðbóka möguleika á að velja nýjan lesara ef þeim líkar ekki innlesturinn. Valraddirnar eru allar skapaðar af vélmennum eða svokölluðum gervigreindarupplesurum.  Þetta nýja verkfæri Stoyrtel er tekið í gagnið vegna þess að 89 prósent af þeim sem …