Tvö tilboð í töku tvö

Frá skóflustungu viðbyggingarinnar við flugstöðina á Akureyri þann 15. júní síðastliðinn. Frá vinstri Hjördís Þórhallsdóttir, flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Sigrún Björn Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. MYND: ISAVIA

Tvö tilboð bárust í viðbætur og breytingar á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Tilboðin bárust frá verktakafyrirtækjunum Húsheild og Hyrna. Tilboð Húsheildar hljóðar upp á tæpar 865 milljónir króna en tilboð Hyrnu upp á rúmar 810 milljónir króna. Verkefnið felur í sér viðbyggingu við núverandi flugstöð og breytingu á núverandi húsnæði flugstöðvarinnar og nánasta umhverfi. Fyrsta skóflustunga að viðbyggingunni var tekin í júní síðastliðnum.

Þetta er í annað sinn sem verkefnið er boðið út en í fyrra skipti barst aðeins eitt tilboð í verkið og var því hafnað þar sem það reyndist talsvert yfir kostnaðaráætlun.

„Nú verður farið ítarlega yfir þessi tvö tilboð sem bárust,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, í tilkynningu. „Verkefnið sem hér um ræðir er 1.100 fermetra viðbygging við flugstöðina með góðri aðstöðu fyrir toll og lögreglu, fríhöfn og veitingastað. Áætlað er að heildarverkefninu verið lokið síðsumars 2023.“