Vikan sem nú er á enda var fjárfestum í fluggeiranum almennt ekki góð. Gengi hlutabréfa í stóru bandarísku flugfélögunum lækkaði verulega og það sama má segja um evrópsku lággjaldaflugfélögin. Í norrænum kauphöllum lækkaði líka gengi fimm af þeim sex flugfélögum sem þar eru skráð.