Samfélagsmiðlar

Samið um stækkun flugstöðvarinnar á Akureyri

Frá Akureyrarflugvelli.

Isavia Innanlandsflugvellir og Byggingafélagið Hyrna hafa undirritað samning um smíði viðbyggingar við flugstöðina á Akureyrarflugvelli. Samningsupphæðin fyrir verkið er 810,5 milljónir króna.

Verkáætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í lok mars næstkomandi og þeim verði lokið í byrjun ágúst 2023 samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu. Verkefninu er skipt niður í þrjá áfanga. Sá fyrsti snýr að nýrri viðbyggingu við flugstöðina. Í öðrum áfanga verður núverandi komusvæði flugstöðvarinnar endurbyggt og þar er áætlað að nýtt innritunarsvæði verði. Nýtt skyggni og töskubílaskýli verður þá einnig byggt með tilheyrandi malbikun. Í þriðja og síðasta áfanga verða núverandi innritunarsvæði og skrifstofuhluti endurbyggð.

„Það er afar ánægjulegt að taka þetta næsta og mikilvæga skref í uppbyggingu Akureyrarflugvallar,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Hér er um stórt verkefni að ræða, nánar tiltekið þessi 1.100 fermetra viðbygging við flugstöðina og um leið bætt aðstaða fyrir lögreglu, toll, fríhöfn og veitingastað. Þjónustan við farþega og flugfélög batnar til muna og við hlökkum til að taka þessa breyttu og bættu flugstöð í gagnið síðsumars 2023.“

„Við hjá Hyrnu erum afar spennt að hefjast handa við þetta mikilvæga verkefni,“ segir Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Byggingafélagsins Hyrnu. „Verkáætlun liggur fyrir og okkar fólk reiðubúið að setja allt í gang. Það er einkar ánægjulegt að taka þátt í að hleypa þessu verkefni af stokkunum hér í dag. Þetta er eitt af mínum síðustu verkefnum hjá Hyrnu nú þegar ég læt af störfum um áramótin eftir rúmlega fimm áratuga starf. Það verður ánægjulegt að sjá þessa stækkun rísa.“

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …