Fyrstu mánuði ársins var farþegafjöldinn í Leifsstöð vel innan við tíund af því sem var á sama tíma árið 2019. Frá því í júní hefur batinn svo aukist mánuð eftir mánuð. Það á þó ekki við um nýliðinn nóvember.
Þann mánuð fóru nefnilega 250 þúsund farþegar um flugstöðina sem er 57 prósent af fjöldanum á sama tíma árið 2019. Þessar endurheimtur er á pari við október en þó einu prósentustigi minni. Þróunin var því niður á við í fyrsta sinn síðan í mars eins og sjá má á línuritinu.
Til samanburðar þá var fjöldi áætlunarferða frá Keflavíkurflugvelli rétt um þriðjungi minni en á sama tíma í hittifyrra. Farþegunum fækkaði þó hlutfallslega mun meira sem þýðir að þoturnar eru ennþá ekki eins þéttsetnar og var fyrir heimsfaraldur.