Vilja tengingu milli Keflavíkurflugvallar og Borgarlínu

Alþjóðlega hönnunar- og skipulagsstofan KCAP, með höfuðstöðvar í Sviss, varð hlutskörpust í samkeppni sem Kadeco hélt um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll til ársins 2050. 

Í tilkynningu segir að mikill áhugi hafi verið á verkefninu en tuttugu og fimm fyrirtæki sóttust eftir að taka þátt í forvalinu. Þrjú þeirra voru valin til að skila mótuðum tillögum byggðum á efnahagslegri greiningu og sem fyrr segir var það svissneska hönnurstofan sem bar sigur úr býtum.

„Við erum mjög ánægð með þennan mikla áhuga. Mörg viðurkennd fyrirtæki, sem sinna stórverkefnum við þróun og skipulag svæða og borga, óskuðu eftir upplýsingum og þátttöku í forvalinu. Þau fyrirtæki sem voru valin skiluðu öll mjög áhugaverðum hugmyndum sem við getum nýtt í framhaldinu. Vinningstillagan er mjög spennandi en á sama tíma raunhæf,” segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.

Í tilkynningu segir að meðal þess áhugaverða í vinningstillögunni er hugmynd um að forgangsbraut verði lögð fyrir vistvæna fólksflutninga milli Keflavíkurflugvallar og  höfuðborgarsvæðisins, þar sem hún tengdist Borgarlínu. Þessi farartæki sem tengd yrðu forgangsbrautinni ættu að komast hraðar á milli en einkabílar og nýtast vel farþegum og starfsfólki á flugvallarsvæðinu. „Með þessu verða almenningssamgöngur á svæðinu styrktar og unnið að markmiðum  Íslands um kolefnishlutleysi og sjálfbærni,” segir Pálmi Freyr.

Anouk Kuitenbrouwer, arkitekt hjá KCAP, segir að hennar félagar hlakki mjög til samstarfsins við Kadeco. Í þróunaráætluninni felist mikil og spennandi tækifæri.

„Ég leyfi mér að líkja þróunaráætluninni við íslenska geimferðaáætlun. Svo þýðingarmikið verkefni krefst yfirvegaðrar dirfsku. Það hvernig til tekst ræðst svo auðvitað af viðbrögðum fyrirtækja og almennings. Í þetta sóttum við innblástur í hönnunarvinnunni en nálgumst hana af varfærni og raunsæi. Mikilvæga hluta svæðisins má þróa í áföngum og um leið varðveita með hagkvæmri landmótun þau gæði sem felast í opnum víðernum umhverfis það,” segir Kuitenbrouwer.