Þegar mest lét flugu þotur Icelandair til fimm kanadískra borga en núna er Toronto eini áfangastaður flugfélagsins í Kanada.
Áætlun félagsins fyrir næsta sumar gerir ráð fyrir reglulegum ferðum til þeirrar borgar og eins til Vancouver. Og nú hefur Icelandair bætt Montreal við þennan lista. Sú borg var hluti af sumaráætlun félagsins nokkrar sumarvertíðir fyrir heimsfaraldur.
Samkvæmt heimasíðu Icelandair er gert ráð fyrir að flugið til hinnar frönskumælandi Montreal hefjist í lok júní. Flogið verður á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum.
Icelandair verður þó ekki eitt um flugið til Montreal því Air Canada stefnir á að taka upp þráðinn í Íslandsflugi sínu frá þeirri borg og eins Toronto í vor. Kanadíska félagið mun líkt og Icelandair fljúga þrisvar í viku frá Montreal.
Það var sumarið 2016 sem bæði Icelandair og Wow Air hóf flug til Montreal. Sá munur var þó á að Wow Air hélt úti fluginu til borgarinnar yfir vetrarmánuðina á meðan Icelandair gerði hlé á fluginu yfir veturinn. Og miðað við flugáætlunina á heimasíðu flugfélagsins er gert ráð fyrir að það verði líka gert næstkomandi vetur.