Að jafnaði voru farnar 32 áætlunarferðir á dag frá Keflavíkurflugvelli í desember á vegum fjórtán flugfélaga. Sem fyrr var Icelandair umsvifamest allra.
Félagið stóð nefnilega undir 55 prósent brottfara í desember en til samanburðar var vægi Icelandair 58 prósent í desember 2019. Þá var mferðin um Keflavíkurflugvöll líka töluvert meiri en núna. Nemur niðursveiflan um þriðjungi í samanburði við árslok 2019.
Afköst Icelandair í dag eru líka töluvert undir því sem hún var þá. Ferðir félagsins voru þannig um sextíu prósent af því sem var.
Niðursveiflan hjá tveimur stærstu erlendu flugfélögunum á Keflavíkurflugvelli var hlutfallslega minni. Ferðum Easyjet fækkaði um þrjátíu prósent í samanburði við desember 2019 en samdráttur hjá Wizz Air nam 22 prósentum. Þrátt fyrir þessar breytingar voru félögin tvö umsvifameiri en Play í síðasta mánuði eins og sjá má.