Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur undirritað tvær reglugerðir sem koma til móts við erfiða lausafjárstöðu fyrirtækja í ferðaþjónustu vegna afleiðinga Covid-19 faraldursins.
Annars vegar er aðilum sem hafa leyfi til reksturs ökutækjaleigu veitt undanþága til að halda áfram starfsemi þrátt fyrir að skuldir í skatta og opinber gjöld nemi allt að 10 milljónum króna. Þó er sett það skilyrði að leyfishafi standi við fyrirliggjandi greiðsluáætlun við skattayfirvöld um niðurgreiðslu skuldar samkvæmt því sem segir á vef Stjórnarráðsins.
Samskonar undanþága er veitt rekstrarleyfishöfum veitinga- og gististaða. Hún nær til rekstrarleyfishafa sem skulda allt að 20 milljónir kr. í skatta og opinber gjöld. Í slíkum tilvikum verður rekstrarleyfishöfum einnig gert skylt að leggja fram fullnægjandi tryggingu í formi ábyrgðaryfirlýsingar viðskiptabanka eða sparisjóðs.
„Við höfum lagt kapp á að styðja við ferðaþjónustuna á tímum heimsfaraldurs. Það er nauðsynlegt að leita allra leiða til að gera fyrirtækjum í ferðaþjónustu kleift að ná vopnum sínum, nú þegar við sjáum loksins hilla undir bjartari tíma eftir erfiðan rekstur undanfarin misseri. Með þessum reglugerðarbreytingum er liðkað til á tíma þar sem öllu skiptir að vel takist til koma ferðaþjónustunni aftur á fullt skrið“, skrifar Lilja Dögg í tilkynningu.