Janúar er vanalega rólegur mánuður þegar kemur að ferðalögum en í þetta sinn bættust við neikvæð áhrif ómíkrón afbrigðisins á eftirspurn.
Þessi þróun endurspeglast í nýjum farþegatölum Icelandair því farþegum félagsins fækkaði um þriðjung í nýliðnum janúar í samanburði við desember í fyrra. Það er hlutfallslega mun meiri samdráttur en á milli desember 2019 og janúar 2020 þegar farþegunum fækkaði um fimmtung.
Í heildina nýttu 113 þúsund farþegar sér ferðir Icelandair frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli í janúar og hafa þeir ekki verið eins fáir síðan í júní á síðasta ári þegar ferðalög milli landa hófust í raun á ný í kjölfar bólusetninga.
Hlutfall óseldra sæta í flugvélum Icelandair var líka hærra núna en verið hefur síðustu mánuði eins og sjá má hér fyrir neðan. Í janúar voru fjögur af hverjum tíu sætum tóm sem er litlu betra en hjá Play. Þar var sætanýtingin 56 prósent í janúar.