Í nýliðinni viku hafði innrás Rússa á Úkraínu mjög neikvæð á hlutabréfamarkaði og gengi flugfélaga lækkaði líkt og hlutabréf almennt.
Þannig fór það líka hjá þeim sjö flugfélögum sem skráð eru í kauphallir Norðurlanda. Gengi hlutabréfa í þeim öllum lækkaði í vikunni en þó mismikið eins og hér má sjá. Niðursveiflan var langmest hjá SAS og var þetta önnur vikna í röð sem bréf í félaginu falla hratt. Skýringin liggur í neikvæðum horfum í rekstri félagsins. SAS birti í byrjun síðustu viku uppgör fyrir tímabilið nóvember 2021 til janúar í ár. Samhliða því boðuðu stjórnendur flugfélagsins umtalsverða uppstokkun á rekstrinum.