Fjögur stærstu flugfélög Norðurlanda fóru öll í gegnum fjárhagslega endurskipulagninu vegna neikvæðra áhrifa heimsfaraldursins á reksturinn.
Og segja má að í herbúðum Norwegian hafi tiltektin verið stórtækust því félagið losaði sig við allar breiðþoturnar og lagði niður áætlunarflug til Norður-Ameríku. Farþegahópur Norwegian í dag eru því rétt um þriðjungur af því sem var í ársbyrjun 2020 þegar Covid-19 var handan við hornið. Núna snýst rekstur þessa norska lággjaldaflugfélags um áætlunarflug innan Skandinavíu og ferðir þaðan til annarra Evrópuríkja.
Í nýliðnum janúar nýttu nærri sjö hundrað þúsund farþegar sér þessar ferðir Norwegian sem er litlu fámennari hópur en sat í þotum SAS í mánuðinum. Sætanýtingin hjá Norwegian var líka mun betri því þar seldust sjö af hverjum tíu sætum á meðan SAS flaug sínar ferðir með hálfsetnar þotur.
Hjá Icelandair var sætanýtingin hlutfallslega mitt á milli þess sem skandinavísku keppinautarnir náðu í janúar eða um 60 prósent. Icelandair er aftur á móti það norræna flugfélag sem er komið lengst í því að ná fyrri styrki, alla vega þegar horft er til fjölda farþega. Í janúar árið 2020 flugu 227 þúsund farþegar með íslenska félaginu til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli en í janúar í ár var hópurinn helmingi fámennari.
Norwegian rekur lestina í þessum samanburði því þar er farþegahópurinn búinn að skreppa mikið saman sem fyrr segir. SAS og Finnair eiga líka langt í land eins og sjá má hér fyrir neðan.