Samfélagsmiðlar

Ísland áfram saman í sókn

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra og Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, hafa undirritað samning um framhald „Ísland saman í sókn“ sem er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu. Verkefnið er hluti af viðspyrnu stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Með samningnum eru verkefninu tryggðar 550 milljónir króna í viðbótarfjármagn sem nýttar verða til að framlengja markaðsverkefnið í ár að því fram kemur í tilkynningu.

Þar er haft eftir Lilju Dögg að verkefnið hafi vakið mikla og verðskuldaða athygli og skilað góðum árangri.

„Í ljósi þess að faraldurinn hefur dregist töluvert á langinn er nauðsynlegt að halda verkefninu áfram og byggja þannig undir nauðsynlega viðspyrnu ferðaþjónustunnar á árinu 2022,“ bætir ráðherra við.

Tilgangur verkefnisins er að styrkja ímynd Íslands sem áfangastaðar, auka eftirspurn og viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og annarra útflutningsgreina. Verkefnið er unnið í samræmi við framtíðarsýn og leiðarljós íslenskrar ferðaþjónustu til 2030 sem ber yfirskriftina „Leiðandi í sjálfbærri þróun“ og langtímastefnu stjórnvalda og atvinnulífs fyrir íslenskan útflutning.

„Í gegnum faraldurinn hefur tekist að viðhalda miklum áhuga á ferðalögum til Íslands með markvissum aðgerðum. Markaðssetning áfangastaðar er langhlaup, og nú þegar gera má ráð fyrir að ferðaþjónusta sé að taka við sér á ný þurfum við að vera tilbúin til þess að mæta þeirri miklu samkeppni sem gera má ráð fyrir frá öðrum áfangastöðum og breyta þessum uppsafnaða áhuga í heimsóknir til landsins. Við erum spennt fyrir því verkefni sem framundan er í samstarfi við íslenska ferðaþjónustu,“ skrifar Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, í tilkynningu.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segist þar telja mikilvægt fyrir greinina og áfangastaðinn Ísland að fá þennan stuðning núna þegar allir áfangastaðir heims fara að keppast um að ná til sín takmörkuðum fjölda ferðamanna.

„Ég vil hrósa ríkisstjórninni fyrir að taka þetta skref núna. Þessi fjárfesting mun skila sér í hraðari viðspyrnu fyrir ferðaþjónustuna í landinu og efnahagslífið í heild,“ segir Bjarnheiður að lokum.

Nýtt efni

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …