Samfélagsmiðlar

Samstarf um orkuskipti í flugi

Starfsfólk Landsvirkjunnar og Icelandair en fyrirtækin tvö ætla að vinna saman að orkuskiptum í flugi.

Landsvirkjun og Icelandair ætla að taka höndum saman við þróun lausna í orkuskiptum í flugi á Íslandi.
Saman ætla fyrirtækin að leggja mat á núverandi stöðu og undirbúa verkefni, sem munu stuðla að
framgangi í orkuskiptum í flugi samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu.

Þar segir að markmiðin með verkefninu séu þrjú. Í fyrsta lagi að leggja mat á möguleika þess að hrinda í framkvæmd þróunarverkefni, þar sem fyrstu skref orkuskipta í flugi yrðu stigin. Í öðru lagi að skapa vettvang hagaðila og stuðla að samvinnu varðandi orkuskipti í flugi og í þriðja lagi er stefnt að því að fræða almenning og hagaðila um mikilvægi orkuskipta í flugi og hvaða skref þarf að taka.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir mjög ánægjulegt að orkufyrirtæki þjóðarinnar og stærsta
flugfélagið hafi ákveðið að leggjast saman á árarnar, til að vinna að orkuskiptum í flugi.

„Orkuskipti í samgöngum eru óhjákvæmileg og þau eru þegar á fullri ferð að því er fólksbílana varðar. Við þurfum líka að finna lausnir fyrir þungaflutninga, skip og flugvélar og það er ekki eftir neinu að bíða.“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, skrifar í tilkynningu að flugfélagið bindi góðar vonir við að samstarfið muni skila raunhæfum, sameiginlegum tækifærum. „Óskastaðan er sú að Ísland verði í fararbroddi í orkuskiptum í flugi. Fyrst um sinn er raunhæft að horfa til orkuskipta í innanlandsflugi en við erum í einstakri stöðu hér á landi vegna stuttra flugleiða innanlands og aðgengis að grænni orku. Auk þess getur lega landsins milli Evrópu og Norður Ameríku skapað tækifæri þegar kemur að orkuskiptum í millilandaflugi,“ segir Bogi.

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …