Hjá Play fækkaði farþegunum umtalsvert í janúar frá því sem var í desember enda dró félagið töluvert úr framboði. Það voru aftur á móti fleiri í hverri ferð að þessu sinni.
Mynstrið var það sama hjá norska lággjaldaflugfélaginu Flyr en það hóf einnig rekstur í júní í fyrra. Þar á bæ batnaði sætanýtingin í janúar umtalsvert á sama tíma og farþegahópurinn skrapp töluvert saman eins og sjá má hér á grafinu.