Samfélagsmiðlar

Einingakostnaðurinn hjá Play fór undir Icelandair

Tekjur Play á hvern floginn kílómetra hækkuðu um 35 prósent á milli þriðja og fjórða ársfjórðungs í fyrra. Áfram eru þessar einingatekjur þó töluvert undir því sem var hjá Icelandair á sama tíma.

Það félag fékk að jafnaði 6,9 dollarasent (um 9 kr.) á hvern kílómetra í tekjur síðustu þrjá mánuðina í fyrra á meðan Play fékk 3,9 sent (um 5 kr).

Þegar kemur að einingakostnaði þá var hann ögn hærri hjá Play á þriðja fjórðungi síðasta árs en fór svo undir kostnað keppinautsins síðustu þrjá mánuði ársins. Munurinn er þó ekki mikill eins og sjá má grafinu.

Kaup á eldsneyti eru talinn með í þessum lið en olíuverðið hækkaði á milli þriðja og fjórða ársfjórðungs síðasta árs. Í uppgjöri Icelandair kom fram að félagið greiddi að jafnaði 12 prósent meira fyrir olíu síðustu þrjá mánuðina í fyrra í samanburði við tímabilið júlí til september.

Ljóst má vera að einingakostnaðurinn hjá báðum félögum hefur hækkað umtalsvert það sem af er þessu ári enda hefur olíuverðið hækkað um rúmlega þriðjung frá áramótum. Ef launakostnaður er frátalinn þá eru kaup á eldsneyti stærsti kostnaðarliðurinn í rekstri flugfélaganna.

Við samanburð á einingatekjum og -kostnaði félaganna tveggja verður að hafa í huga að flugleiðir Icelandair eru að jafnaði um fjórðungi lengri en hjá Play. Þar með lækkar gildi beggja þessara eininga hjá Icelandair.

Öfugt við stjórnendur Icelandair þá upplýsir Play um þróun meðalfargjalda. Og þar á bæ fengust að jafnaði 167 dollarar í tekjur af hverjum farþega á fjórða ársfjórðungi sem var hækkun um sjö prósent frá fjórðungnum á undan.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …