Hagnaður af rekstri Radisson 1919 hótelsins við Tryggvagötu í fyrra nam 133 milljónum króna. Það er tveimur milljónum meira en árið 2019. Afkoman batnaði sérstaklega á síðasta ársfjórðungi þegar rekstrartekjurnar voru 31 milljón hærri en kostnaðurinn. Á sama tíma árið 2019 var rekstrartap upp á sex milljónir króna en þá voru tekjurnar reyndar töluvert hærri.
Þetta má lesa úr ársreikningum fasteignafélagsins Eikar sem á hótelið en reksturinn er í höndum Radisson hótelkeðjunnar.
Spurður um þennan viðsnúning á fjórða ársfjórðungi í fyrra þá segir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar, að hann skrifist helst á tvo liði. Í fyrsta lagi hafi hótelið sjálft rekið bar og veitingastað í húsnæðinu árið 2019 en sá rekstur hafi ekki gengið vel.
„Núna er leigusamningur um veitingastaðinn og þar hefur verið opnaður frábær staður sem heitir Brút. Þá var einnig gerður leigusamningur um opnun á kaffihúsi á hótelinu til sömu rekstraraðila og eru með veitingastaðinn,” útskýrir Lýður.
Seinni skýringin á bættri afkomu 1919 hótelsins er sú að fastur kostnaður hefur lækkað nokkuð að sögn Lýðs.