Samfélagsmiðlar

Bara þau norsku hækkuðu

Flugverjar Flyr en gengi félagsins hefur tvöfaldast síðustu fjórar vikur.

Hlutabréf í Icelandair tóku dýfu í gær eftir að félagið birti uppgjör fyrir fyrsta fjórðung ársins. Þar var niðurstaðan tap upp á 6,4 milljarða króna og afturkölluðu stjórnendur félagsins í framhaldinu fyrri spá sína um jákvæða afkomu í ár.

Í heildina lækkaði gengi Icelandair um tvö prósent í vikunni eftir að hafa hækkað um fimm prósent fyrstu fjóra daga vikunnar.

Markaðsvirði Play lækkaði líka í vikunni og sömu sögu má segja um SAS en viðræður félagsins við starfsfólk og hluthafa eru komnar í öngstræti.

Hlutabréf í norsku lágfargjaldafélagunum þremur hækkuðu hins vegar töluvert í vikunni og þá sérstaklega Flyr því gengið rauk upp um 35 prósent. Þar með hefur verðmæti Flyr tvöfaldast síðustu fjórar vikur en er þó ennþá langt undir því sem var í fyrsta hlutafjárútboði félagsins í mars í fyrra.

Fjárfestar tóku líka vel í það Norse Atlantic er loks farið að selja flugmiða í ferðir sínar frá Ósló til Bandaríkjanna en þar kom á óvart að félagið ætlar ekki að fljúga til Stewart flugvallar í New York heldur til JFK. Talsmaður félagsins sagði í svari til Túrista að skýringin á því væri skortur á þjónustu við fraktflutninga á fyrrnefnda flugvellinum.

Nýtt efni

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …