Leitarvélarisinn Google rekur sérstaka bókunarsíðu sem ber saman verð á flugi og veitir um leið upplýsingar um hvaða flugfélög fljúga á viðkomandi leið.
Þeir sem nýta þessa Google Flight þjónustu, til að finna flug til og frá New York, fá hins vegar ekki neinar upplýsingar um áætlunarferðir Play frá Stewart flugvelli í New York. En þaðan ætlar Play að fljúga daglega frá og með byrjun júní.
Google Flight gefur því notendum sínum ekki möguleika á að bóka flug með íslenska félaginu til New York frá áfangastöðum félagsins í Evrópu og ekki heldur frá Keflavíkurflugvelli. Þá segir leitarvélin að valkostirnir séu bara þrír, það er áætlunarflug Delta, Icelandair og United. Aftur á móti finnur Google flugferðir frá Stewart þegar nafn flugvallarins er slegið inn eða borgarinnar Newburgh sem er fyrir norðan heimsborgina sjálfa.
Spurður um þessa stöðu þá segir Birgir Olgeirsson, upplýsingafulltrúi Play, að unnið sé að því að bæta úr þessu. Hann vísar jafnframt til þess að Stewart flugvöllur sé vottaður af IATA, alþjóðasamtökum flugfélaga og þar með komi ferðirnar þaðan upp sem valkostur í langflestum flugleitarvélum.
„Þar að auki nær okkar Google-auglýsingaherferð að grípa marga sem eru að leita að flugferðum til og frá New York,“ bætir Birgir við.
Eins og fram kom þegar Play hóf sölu á farmiðum til New York þá er Stewart flugvöllur lengra frá Manhattan en stóru flugvellirnir, JFK og Newark. Birgir Jónsson, forstjóri Play, benti þó á að kostnaðurinn væri miklu lægri þar en á stóru völlunum. Forstjórinn sagði það líka kost Stewart væri með alþjóðaskráningu og kæmi því sjálfkrafa upp í öllum bókunarsíðum.
Nú er hins vegar komið á daginn að það á ekki við um Google Flight leitarvélina enn sem komið er.