Þotur Air France munu fljúga hátt í tvö hundruð ferðir í viku til samtals fjórtán áfangastaða í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er um fimmtungi fleiri ferðir en sumarið 2019.
Í flestum tilvikum er ferðinni heitið frá flugvöllum Parísar til New York því Air France gerir ráð fyrir allt að átta ferðum á dag á þeirri leið. Tvær þeirra eru reyndar á vegum Delta flugfélagsins sem lengi hefur unnið náið með franska félaginu.
Í tilkynningu frá Air France eru þessar tíðu ferðir kynntar sem sérstök skutlþjónusta á milli heimsborganna tveggja. Frá og með byrjun júní munu farþegar nefnilega geta valið á milli brottfara frá París til New York með eins til tveggja klukkutíma millibili yfir daginn.
Samtals 23 ferðir í viku frá París
Bæði Icelandair og Play leggja áherslu á ferðir frá París í sínum áætlunum. Þotur Icelandair munu þannig fljúga frá frönsku borginni fimmtán sinnum í viku og hjá Play verða ferðirnar átta í viku. Til að halda úti svona mörgum brottförum þurfa íslensku félögin að fá um borð í þotur sínar fjölda farþega sem eru á leið alla leið frá Frakklandi til Bandaríkjanna. Og þá verða ófáir í þeim hópi að setja stefnuna á New York enda vegur sú borg líka þungt í áætlunum Icelandair og Play.
Farþegi sem velur að fljúga frá París til New York með íslensku flugfélögunum má reikna með að ferðalagið taki um 11 klukkutíma. Viðkomandi sparar sér nærri þrjá tíma með því að fljúga beint og hann getur líka sparað sér evrur. Því samkvæmt athugun Túrista eru fargjöldin fyrir beina flugið með Air France og Delta oft lægri en íslensku flugfélögin bjóða á milli heimsborganna tveggja. Alla vega eins og staðan er í dag.
Fjölbreyttari farþegahópur
Í því samhengi verður þó að hafa í huga að í Parísarflugi Icelandair og Play er fjöldi farþega sem er á leið til Íslands eða annarra borga vestanhafs. Þar með stjórnast fargjöldin hjá íslensku félögunum að fleiri þáttum en því hvað beint flug milli Parísar og New York kostar hjá keppinautunum.
Auk Air France þá bjóða flugfélögin United, American, La Compagnie og French Bee líka upp á daglegar ferðir frá París til New York.