Í þarsíðustu viku lækkaði gengi hlutabréfa í öllum þeim sjö norrænu flugfélögum sem skráð eru á markað. Í vikunni sem nú er senn á enda snérist þetta við.
Virði flugfélaganna hækkaði í öllum tilvikum og það voru Flyr og SAS tóku mesta stökkið eins og sjá má grafinu. Uppsveiflan hjá SAS er áhugaverð fyrir þær sakir að vikan þar á bæ einkenndist af erfðium kjaraviðræðum við flugmenn. Samkomulag virðist vera fjarlægur möguleiki á þessari stundu og almennt er því spáð að boðað verði til verkfalls síðar í vor.