Samfélagsmiðlar

Fargjöld íslensku flugfélaganna í sitthvora áttina

Svona hefur verðþróunin verið síðustu tvær vikur.

Í dag fljúga þrjú flugfélög héðan til New York og í byrjun júní bætist Play í þann hóp.

Þeir sem ætla að fljúga héðan til New York í sumar geta valið á milli daglegra brottfarar á vegum fjögurra flugfélaga. Þar á meðal með Icelandair og Play.

Það síðarnefnda fer jómfrúarferð sína til borgarinnar í byrjun júní og þá til Stewart flugvallar í Hudsondalnum. Icelandair gerir út frá tveimur stærstu flugvöllunum heimsborgarinnar, Newark og JFK. Þotur United og Delta fljúga líka hingað frá þessum tveimur.

Samkeppnin um farþega á leið milli Íslands og New York er því mikil en samkvæmt niðurstöðu, verðkönnunar Túrista fyrir hálfum mánuði síðan voru fargjöldin í júlí lægst hjá Play. Þau voru aftur á móti hæst hjá Icelandair. Bandarísku félögin voru mitt á milli þeirra íslensku.

Í dag eru meðalfargjöld Delta og United komin töluvert upp fyrir Icelandair og Play hefur líka hækkað sína verðskrá. Aftur á móti hefur meðalverðið hjá Icelandair lækkað um fimm af hundraði samkvæmt nýrri verðkönnun Túrista.

Nú kostar flug með Icelandair til New York í júlí og heim aftur viku síðar að jafnaði rúmlega 66 þúsund krónur eða fjögur þúsund krónum minna en fyrir hálfum mánuði síðan.

Hjá Play hefur meðalfargjaldið aftur á móti hækkað um 3.600 krónur og er nú rúmlega 53 þúsund krónur. Hækkunin nemur sjö prósentum.

Í könnunum Túrista er leitað eftir ódýrasta farinu hjá hverju félagi fyrir sig hvern einasta dag í júlí. Reiknað var með að hver ferð sé ein vika og handfarangursheimild er bætt við lægsta verðið hjá Play. Hjá hinum þremur félögunum þarf ekki að borga aukalega fyrir slíkt.

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …