Það eru sjö norræn flugfélög skráð á hlutabréfamarkað og það sem af er ári hefur markaðsvirði allra nema Norwegian lækkað. Nú í vikunni fóru bréfin í norska lágfargjaldaflugfélaginu hins vegar sömu leið og hinna.
Gengi hlutabréfa í Norwegian lækkuðu nefnilega um þrjú prósent eða aðeins minna en raunin varð hjá Icelandair og Play eins og sjá má. Aftur á móti leiddi Finnair lækkanir vikunnar en í síðustu viku var finnska flugfélagið það eins í þessum hópi sem hækkaði.