Farþegar á Keflavíkurflugvelli gátu flogið beint til hátt í fimmtíu erlendra borga í apríl en langflestar voru ferðirnar sem fyrr til London.
Í öðru sæti var Kaupmannahöfn en gera má ráð fyrir að danska höfuðborgin fari upp fyrir þá bresku á listanum nú í sumar. Þá fækka bresku flugfélögin nefnilega ferðum sínum til Keflavíkurflugvallar.
Eins og sjá má á listanum þá jókst umferðin töluvert til höfuðborga Noregs og Bandaríkjanna í apríl frá því sem var í mars. Í talningum Túrista eru flugferðir Play og Icelandair til Baltimore-Washington flugvallar flokkaðar sem ferðir til Washington DC auk áætlunarferða síðarnefnda félagsins til Dulles flugvallar. Báðir eru þeir álíka langt frá Hvíta húsinu.
Ferðunum til Amsterdam fækkaði aftur á móti þónokkuð í apríl en stuttri dvöl Play á Schiphol lauk í lok mars.