Samfélagsmiðlar

Munurinn á eldsneytisvörnum Icelandair og Play

Það kostar miklu meira að dæla eldsneyti á þoturnar í dag en fyrir nokkrum mánuðum síðan.

Það sem af er ári hefur verð á Norðursjávarolíu hækkað um nærri helming en þessi þróun hefur mjög neikvæð áhrif á afkomu flugfélaga. Kaup á þotueldsneyti eru nefnilega næststærsti kostnaðarliðurinn í rekstrinum á eftir launum.

Nú í morgunsárið hefur verð á olíu þó lækkað um nærri fjóra af hundraði og eru nú rétt 110 dollarar á fatið. Hæst fór verðið í byrjun mars eða upp í 129 dollara en þá var stríðið í Úkraínu nýlega hafið og viðskiptaþvinganir á hendur Rússum voru að kynntar. Þær fólu meðal annars í sér verulegar takmarkanir á kaupum á rússneskri orku.

Sem fyrr segir vega kaup á þotueldsneyti þungt í rekstri flugfélaga en tonnið kostar í dag rétt um 1.400 dollara. Til marks um hækkunina að undanförnu þá bauðst Icelandair um miðjan febrúar að gera framvirkan samning um kaup á þotueldsneyti á seinni hluta ársins fyrir 800 dollara á tonnið. Stjórnendur félagsins tóku ekki því tilboði eins og áður hefur komið fram.

Bæði Icelandair og Play hafa gert samninga um fyrirframkaup á litlum hluti af eldsneytisnotkuninni á næstu mánuðum. Kjörin hjá Icelandair hljóða upp á 664 dollara á tonnið fyrir um fjórðung af notkuninni á yfirstandandi ársfjórðungi, apríl til júní. Á næsta fjórðungi fær félagið 18 prósent af notkuninni fyrir 935 dollara á tonnið eins og sjá má á grafinu hér neðst.

Samningur Play við Skeljung hljóðar upp á fimmtung af notkuninni fyrir júní til ágúst og tíund af eldsneytisþörfinni í september til nóvember. Fyrir fyrra tímabilið greiðir Play 1.210 dollara á tonnið en 1.112 dollara á seinna tímabilinu..

Svona samningar eru í raun veðmál þar sem annað hvort flugfélagið eða mótaðilinn tapar. Eins og staðan er í dag þá greiðir Skeljungur með samningnum því heimsmarkaðsverðið um 15 prósentum hærra en sem nemur samningsupphæðinni. Samkomulagið nær hins vegar út nóvember og því ekki útséð með hvort það verður Play eða Skeljungur sem græðir á samningnum um þotueldsneytið þegar hann verður gerður upp í lok árs.

Nýtt efni

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …