Leigja breiðþotu sem verður notuð strax í dag

Icelandair leigir þotu til að fylla í skarðið næstu vikur.

Úr farþegarými breiðþotu á vegum Euro Atlantic sem nú hefur leigt Icelandair eina slíka. Mynd: Euro Atlantic

Icelandair hefur gert samning við portúgalska flugrekandann Euro Atlantic um leigu á Boeing 767 farþegaþotu en hún kom til landsins í gær og verður nýtt til að fljúga farþegum félagsins til Munchen í Þýskalandi nú í morgunsárið.

Áætlað er að vélin verði hjá Icelandair í um það bil tvær vikur samkvæmt því sem segir í tilkynningu. Þar segir jafnframt að þessi ráðstöfun hafi komið upp með skömmum fyrirvara vegna tafa sem orðið hafa á viðhaldi flugvéla Icelandair.

Áhöfn leiguvélarinnar verður skipuð bæði starfsfólki Icelandair og Euro Atlantic en um er að ræða nítján ára gamla þotu sem verið hefur í leigu hjá ferðaskrifstofunni Tui að undanförnu.

„Við erum með metnaðarfulla flugáætlun í sumar, mikla tíðni og fjölbreytta brottfarartíma innan dagsins til að mæta mikilli eftirspurn eftir flugi og ferðalögum í sumar. Þetta umfang hefur einnig gert okkur kleift að bregðast við þeim röskunum sem hafa orðið á flugi vegna aðstæðna sem hafa skapast eftir faraldurinn og tryggja að farþegar okkar komist sem fyrst á leiðarenda. Hins vegar, þar sem allir innviðir eru þandir til hins ítrasta og tafir hafa orðið á viðhaldi flugvéla, teljum við nauðsynlegt að búa okkur til enn meiri sveigjanleika þegar kemur að flotanum næstu vikurnar. Þetta er mikilvægt til að geta haldið uppi yfirgripsmikilli flugáætlun okkar og til að geta brugðist við ófyrirséðum aðstæðum,“ segir Jens Bjarnason, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Icelandair, í tilkynningu.