Max þoturnar verða tuttugu talsins

Mynd: Boeing

Icelandair hefur gert samning um langtímaleigu við BOC Aviation (BOCA) vegna tveggja nýrra Boeing 737 MAX 8 flugvéla. Gert er ráð fyrir að vélarnar verði afhentar frá Boeing haustið 2023. Með þessari viðbót verður félagið með 20 Boeing 737 MAX-vélar í rekstri að því segir í tilkynningu

„Það er ánægjulegt að tilkynna um nýjan samning við BOCA sem við höfum átt í löngu viðskiptasambandi við. Við höfum nú tryggt okkur nýjar vélar á hagkvæmum kjörum sem gerir okkur kleift að stækka Boeing 737 MAX flota okkar og um leið styðja við framtíðarvöxt félagsins. MAX vélarnar eru sparneytnari en fyrri vélar og því einnig mikilvægur þáttur í að draga úr kolefnislosun í flugrekstrinum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.