Samfélagsmiðlar

Kynnisferðir skiluðu 223 milljóna króna hagnaði

Björn Ragnarsson framkvæmdastjóri Icelandia.

Hagnaður Kynnisferða á síðasta ári nam 223 milljónum króna og námu tekjur
félagsins 6,1 milljarði króna. Eiginfjárhlutfall Kynnisferða í lok síðasta árs var um 43 prósent að því segir í tilkynningu.

Kynnisferðir og Eldey sameinuðust í eitt félag á síðasta ári og í maí var tilkynnt um
að samstæða áðurnefndra fyrirtækja, auk þeirra fimm ferðaþjónustufyrirtækja sem
eru í eigu félagsins, yrði starfrækt undir vörumerkinu Icelandia.

Fyrirtækin eru Reykjavík Excursions/Kynnisferðir, Icelandic Mountain Guides, Iceland Rovers,
Dive.is og Flybus. Auk þess er félagið umboðsaðili Enterprise Rent-a-car, er
undirverktaki Strætó bs. í akstri á höfuðborgarsvæðinu og rekur dráttarbílafyrirtækið
Garðaklett. Þá er Icelandia hluthafi í nokkrum öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum
eins og Fontana á Laugarvatni, Íslenskum heilsulindum og Raufarhólshelli.

„Við erum afar sátt við þessa niðurstöðu, sem er í samræmi við áætlanir okkar. Á
síðasta ári fór að draga úr neikvæðum áhrifum Covid faraldursins, fjöldi ferðamanna
jókst á ný og fyrirtækið var vel undirbúið undir þá aukningu. Reksturinn það sem af er
ári 2022 er jafnframt í samræmi við áætlanir okkar, félagið er öflugt á sínu sviði og
mun halda áfram að vaxa og eflast,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri.

„Starfsfólk okkar hefur sýnt mikla útsjónarsemi við þær erfiðu kringumstæður sem
ríkt hafa á þessum markaði og heldur áfram sínu góða starfi við að bjóða upp á
bestu þjónustu sem hægt er að veita og þá upplifun sem viðskiptavinir okkar búast
við,“ segir Björn.

Nýtt efni

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …