Í vikunni lækkaði gengi hlutabréfa í fimm af þeim sjö norrænu flugfélögum sem skráð eru á markað. Mest var niðursveiflan hjá Flyr því markaðsvirði þess félags lækkaði um nærri átta af hundraði.
Hástökkvari vikunnar var hins vegar SAS en þetta stærsta flugfélag Norðurlanda rær nú lífróður og nýtur einskonar gjaldþrotaverndar bandarískra dómstóla. Engu að síður hafa hlutabréfin í félaginu hækkað um 34 prósent síðastliðinn mánuð.