Það eru sjö norræn flugfélög skráð á hlutabréfamarkað og í liðinni viku hækkaði markaðsverði þeirra allra nema eins. Hástökkvarinn var hið norska Flyr en þrátt fyrir stuttan feril hefur félagið þurft að efna til tveggja hlutafjárútboða.
Það þriðja var reyndar á teikniborðinu nú í sumar en hætt var við þar sem hlutabréfin höfðu fallið töluvert undir útboðsgengið.
Annað nýtt norskt flugfélag, Norse, var svo það eina sem ekki hækkaði í vikunni en lækkunin var lítil eins og sjá má hér fyrir neðan.
Norse fór jómfrúarferð sína þann 14. júní og hefur síðan þá haldið úti áætlunarflugi milli Noregs og Bandaríkjanna. Í júní nam sætanýtingin 82 prósentum hjá félaginun en í síðasta mánuði hækkaði hún upp í 86 prósent. Norse stefnir svo á að auka umsvif sín umtalsvert nú í sumarlok með reglulegum ferðum frá London, Berlín og Los Angeles.
Hlutabréfin í Icelandair og Play fóru líka upp á við í vikunni en leiðin hefur legið upp á við hjá báðum félögum að undanförnu. Hækkunin sl. mánuð nemur fjórðungi hjá þeim báðum.