Endurræsing ferðaþjónustunnar

Lystiskip við Skarfabakka
Ferðamenn og lystiskip við Skarfabakka MYND: ÓÐINN JÓNSSON

Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir Ferðaþjónustudeginum 2022 í Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 14. september kl. 15. Í tilkynningu segir að þrátt fyrir að ferðaþjónustan hafi risið hratt upp úr viðjum heimsfaraldurs þá séu áskoranirnar framundan eru fjölmargar.

„Á fundinum verður fjallað um ferðaþjónustu með tilliti til verðmætasköpunar og stöðunnar í hagkerfinu, áhrif greinarinnar á samfélagið og hvað þarf til að tryggja jákvæða uppbyggingu til framtíðar. Meðal þátttakenda eru Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Þá munu Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar og Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Vök Baths ræða hvernig má viðhalda og styðja jákvæð áhrif ferðaþjónustu á samfélagið, sér í lagi utan höfuðborgarsvæðisins. Bjarnheiður Hallsdóttir formaður SAF og Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri draga fram áskoranir sem leysa þarf úr til að ferðaþjónusta geti þróast áfram sem jákvæður burðarás efnahagslífs og samfélags.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra ferðamála opnar fundinn með ávarpi og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins horfir inn í haustið í lok fundar,“ segir í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar.

Fundurinn á miðvikudag er opinn öllum.