Ísland verður fullgildur þátttakandi í Eurocontrol

Fulltrúar Íslands og Eurocontrol við undirritun samkomulagsins. Mynd: Samgöngustofa

Í dag var undirritaður aðlögunarsamningur Íslands og Eurocontrol sem markar áform Íslands um að gerast aðili að stofnuninni frá 1. janúar 2025. Samningurinn var undirritaður í dag af Jóni Gunnari Jónssyni, forstjóra Samgöngustofu og Eamonn Brennan, forstjóra Eurocontol. Samkvæmt skilmálum hans á Ísland sæti áheyrnarfulltrúa og getur tekið þátt í verkefnum og starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki að því segir í tilkynningu.

Eurocontrol er evrópsk milliríkjastofnun sem hefur allt frá stofnun árið 1960 haft markmið um stuðning við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Ef frá eru talin fáein smáríki sem ekki sinna verkefnum sem tengjast loftrýminu er Ísland nú eina Evrópulandið utan aðildar.

Viðræður um hugsanlega aðild hafa staðið yfir um árabil en aðlögunarsamningurinn nú var undirritaður að fenginni heimild innviðaráðuneytisins.

„Helsti ávinningur aðildar er full þátttaka í miðlægri flæðisstjórnun flugumferðar fyrir samevrópska loftrýmið og samræmdri krísustjórnun vegna t.d. eldgosa og heimsfaraldra. Henni fylgir einnig aðgangur að kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt,“ segir í tilkynningu.

„Eftir jákvætt samstarf við Eurocontol á undanförnum árum hefur með undirskrift samningsins verið stigið mikilvægt skref. Vegna landfræðilegrar legu Íslands eru flug og flugleiðsaga einstaklega mikilvæg til grundvallar efnahags og velmegunar þjóðarinnar. Samvinna þjóða á jafningjagrunni stuðlar að uppbyggingu og viðhaldi innviða á sviði flugmála. Með undirritun samningsins hafa stjórnvöld nú staðfest þá fyrirætlun að Ísland gerist fullgildur aðili að Eurocontol,“ skrifar Jóni Gunnar, forstjóri Samgöngustofu, í tilkynningu.

„Ég er ánægður með að undirritun þessa samning sem er mikilvægt skref í átt að samþættingu Íslands sem 42. aðildarríkis Eurocontrol 1. janúar 2025. Við höfum unnið náið með Íslandi í mörg ár og fögnum ákvörðun þeirra um að ganga í Eurocontrol og taka á sig öll réttindi og skyldur aðildarríkja okkar. Ísland er vaxandi áfangastaður í Evrópu – með yfir 150 flug daglega að meðaltali nú í sumar – þannig að frekari samþætting þeirra inn í evrópska netið mun nýtast bæði í rekstrarlegum og stefnumótandi tilgangi,“ segir Eamonn Brennan, forstjóri Eurocontol.