Samfélagsmiðlar

Kolefnishlutleysi stuðlar að lægri flugfargjöldum

Margir óttast að framundan séu frekari hækkanir á flugfargjöldum. Johan Lundgren, forstjóri EasyJet, sagðist í dag sannfærður um að forysta félagsins um að þróuð verði flugvélatækni sem tryggði kolefnishlutleysi væri rétta leiðin til að halda niðri verði á fargjöldum.

„Kolefnislosun verður mjög kostnaðarsöm ef ekki er tekinn í notkun búnaður sem stuðlar að sjálfbærni. Skattar á losun eiga bara eftir að hækka. Það er algjörlega í takti við stefnu okkar um að vera vel rekið lággjaldaflugfélag að taka forystuna í þessum efnum,” sagði Johan Lundgren á samkomu sem haldin var í höfuðstöðvum EasyJet í London í dag. 

Ferðavefurinn Skift hefur þetta eftir forstjóra EasyJet og bendir réttilega á að sjálfbært þotueldsneyti (SAF), sem er með íblöndunarefnum, er enn sem komið er miklu dýrara en venjulegt eldsneyti og jafnvel ófáanlegt, þrátt fyrir aðgerðir margra ríkisstjórna og hvata sem kynntir hafa verið til að greiða fyrir framleiðslu og sölu þessara vistvænni gerða eldsneytis. 

Svíinn Johan Lundgren, forstjóri EasyJet

EasyJet stefnir að því að ná kolefnishlutleysi árið 2050. Liður í þeirri áætlun er að kynna til sögunnar kolefnishlutlausa 150 sæta farþegaþotu kringum árið 2040, einnig að endurnýja flota félagsins með Airbus A320neos-vélum, aukinni hagræðingu í rekstri á jörðu niðri, nýjum leiðum í nýtingu loftrýmis og með notkun á sjálfbæru eldsneyti (SAF). Með þessum aðgerðum er stefnt að því að draga úr losun á hvern farþega um 78 prósent árið 2050 miðað við 2019 

Lundgren gat þess í dag að hann hefði þegar ritað nýjum forsætisráðherra og samgönguráðherra Bretlands bréf og hvatt til þess að stjórnvalda beittu sér fyrir aðgerðum sem stuðlað geta að kolefnishlutleysi, m.a með endurskoðun reglna sem gilda um flug í Evrópu og áhrif hafa á eldsneytisnotkun. 

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …