Sindri Snær Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðsmála og vaxtar hjá Arctic Adventures, einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins.
Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Arctic Adventures, segir það vera mikinn feng að fá Sindra Snæ til liðs við fyrirtækið. „Sindri Snær kemur með mikilvæga reynslu og þekkingu á sviði stafrænnar þróunar og markaðssetningar sem mun hjálpa okkur við að ná markmiðum okkar um að bæta stöðugt stafræna upplifun viðskiptavina okkar, auka sölu, sjálfvirkni og styrkja ásýnd á vörumerki félagsins. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í teymið okkar,“ segir Gréta María í tilkynningu. Hún bæti við að Sindri Snær verði hluti af frábæru teymi hjá Arctic Adventures, sem hafi náð miklum árangri við að efla starfsemina og taka á móti þeim sívaxandi fjölda ferðamanna sem heimsækja Ísland.
Sindri Snær hefur víðtæka reynslu af stafrænni þróun, markaðssetningu og markaðsstörfum, meðal annars hjá Krónunni, vefstúdíóinu Frumkvæði og við þróun á vefsvæðinu Áttavitanum. Sindri Snær er með meistaragráðu í stafrænni stjórnun frá Hyper Island í Stokkhólmi. Eins er Sindri Snær með BS-gráðu í Viðskipta- og markaðsfræði frá Háskólanum á Akureyri og diplóma próf í tölvunarfræði.
Um 200 manns starfa hjá Arctic Adventures, á Íslandi og í Vilnius, en fyrirtækið keypti nýverið tvö fyrirtæki í ferðaþjónustu sem sérhæfa sig í ferðum um Alaska og Kanada líkt og Gréta María fór yfir í samtali við Túrisa fyrr í sumar. Þau kaup eru liður í þeirri stefnu Arctic Adventure að vera leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu á norðurslóðum.