Bandaríska fjárfestingafélagið Miri Capital Management er komið með um 1,5 prósent hlut í Icelandair eftir að hafa keypt hlutabréf í flugfélaginu fyrir rúmlega einn milljarð króna síðustu vikur samkvæmt heimildum Túrista.
Nafn Miri Capital kom ekki fyrir á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa Icelandair sem birtur var á miðvikudaginn í síðustu viku. En miðað við fyrrnefnd viðskipti þá verður bandaríska félagið meðal tíu stærstu hluthafanna á næsta lista.
Miri Capital bætist þar með við hóp þriggja annarra erlendra fjárfesta sem einnig eru meðal stærstu hluthafa Icelandair. Samanlagt eiga þessir fjórir um 21 prósent hlut og af þeim er hinn bandaríski Bain Capital Credit langstærstur með 17,2 prósent hlut. Sú eign er skráð á Írlandi.
Fjárfestingin Miri Capital í Icelandair er ekki fyrsta fjárfesting félagsins hér á landi því fyrir heimsfaraldur átti það stóran hlut í Origo en á heimasíðu sjóðsins er mynd af Reykjavík notuð sem bakgrunnur.
Miri Capital er lítið fjárfestingafélag en starfsmenn þess hafa ekki svarað spurningum Túristi um kaupin í Icelandair.