Samfélagsmiðlar

Innheimta nú virðisaukaskatt líkt og keppinauturinn hefur alltaf gert

Rútur Airport Direct og Flugrútunnar á planinu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Allt frá því í mars árið 2018 hefur Isavia fengið 41,2 prósent af tekjum Flugrútunnar af akstri frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur og þriðjung af tekjum Airport Direct á þessari sömu leið. Hlutföllin eru niðurstaða útboðs á vegum hins opinbera hlutafélags á aðstöðu fyrir sætaferðir frá Leifsstöð.

Og segja má munurinn á opinberum greiðslum rútufyrirtækjanna tveggja hafi verið ennþá meiri en sem nemur ofannefndri þóknun.

Stjórnendur Airport Direct hafa nefnilega ekki innheimt 11 prósent virðisaukaskatt af sínum tekjum á meðan Kynnisferðir, sem reka Flugrútuna, hafa rukkað skattinn. Nýverið bættist hins vegar virðisaukaskattur við farmiðaverðið hjá Airport Direct eins og sjá má á kvittunum sem farþegar fá.

Skýringin á þessu margra ára skattleysi er sú að forsvarsmenn Hópbíla-Reykjavík Sightseeing, sem á Airport Direct, hafa litið á sætaferðirnar milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur sem almenningssamgöngur og þar með eigi þær að vera undanþegnar virðisaukaskatti.

Skatturinn er hins vegar ekki á sömu síðu því í ársbyrjun hafði Túristi það eftir Snorra Olsen, ríkisskattstjóra, að það væri niðurstaða skoðunar embættisins á málinu að ferðirnar flokkist ekki sem almenningssamgöngur. Þegar spurt er í dag hver staða málsins er hjá Skattinum þá segir í svari embættisins að ekki sé heimilt að veita upplýsingar um mögulegar aðgerðir gegn tilgreindum aðilum eins og Airport Direct.

Sem fyrr segir er Airport Direct hluti af rekstri Hópbíla-Reykjavík Sightseeing en fyrirtækið er í eigu Pac1501 ehf., sem er í eigu framtakssjóðs á vegum Landsbréfa. Og allt frá því í sumar hefur verið unnið að því að Pac1501 ehf. kaupi rekstur Allrahanda Gray Line sem lengi hefur verið eitt stærsta hópbifreiðafyrirtæki landsins. Það félag hefur einmitt líka boðið upp á sætaferðir til og frá Keflavíkurflugvelli um langt árabil og þá undir heitinu Airport Express. Þar á bæ hefur 11 prósent virðisaukaskattur alltaf verið hluti farmiðaverðinu líkt og hjá Flugrútunni.

Og nú mun ríkissjóður líka fá sitt af sölu farmiða Airport Direct.

Nýtt efni

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …