Samfélagsmiðlar

Myndarlegur viðsnúningur í rekstri á síðasta ári

Ferðamálastofu hefur birt upplýsingar um fjárhag atvinnugreina og fyrirtækja í ferðaþjónustu árið 2021. Tölur sína umtalsvert betri afkomu í rekstri en settur er fyrirvari við þessa útkomu.

Ferðamálastofa birtir upplýsingar um rekstur í ferðaþjónustunni og undirgreinum hennar, eftir landsvæðum og stærð fyrirtækja, á árunum 2015 til 2021 á Mælaborði ferðaþjónustunnar.

Á myndinni að ofan, sem Ferðamálastofa lætur fylgja með tilkynningu sinni, sést hversu mikill viðsnúningur varð í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja á síðasta ári. Hlutfall EBITDA af tekjum hefur ekki verið hærra frá árið 2015 og hlutfall hagnaðar eftir skatta var hærra í fyrra en metárin 2018 og 2019, þegar mun fleiri ferðamenn komu til landsins.

Þar sem fjármagnsgjöld voru fryst 2021, sem leiðir af að nettóhagnaður inniheldur ekki greiðslu þeirra, þá setur Ferðamálastofa fyrirvara við þessa útreikninga. „Slæm skuldastaða ferðaþjónustuyrirtækja sem Ferðamálastofu hefur áður fjallað um hefur því að öllum líkindum ekki batnað,“ segir í tilkynningu.

Í gagnagrunninum eru ársreikningar tæplega tvö þúsund fyrirtækja sem skila skattframtali sínu á Íslandi. Heildarfjöldi fyrirtækja í gagnagrunni Ferðamálastofu er um 2.500.

Nýtt efni

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …