Samfélagsmiðlar

Segir kaupin á Actice auka fjölbreytni rekstrarins

Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða og Icelandia.

Undirritað hefur verið samkomulag um kaup Kynnisferða á ferðaþjónustufyrirtækinu Actice ehf. sem starfar undir vörumerkinu Activity Iceland. Actice sérhæfir sig í klæðskerasaumuðum ferðalausnum í náttúru Íslands og gerir út 13 breytta jeppa auk þess að bjóða upp á ýmsa aðra þjónustu fyrir ferðamenn. Eigendur þess eru Harpa Groiss, Haraldur G. Bender og Guðjón Häsler.

Kynnisferðir sem starfa undir vörumerkinu Icelandia eru eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins.  Í samstæðu félagsins eru Reykjavik Excursions, Icelandic Mountain Guides, Iceland Rovers, Dive.is, Flybus, dráttarbílafyrirtækið Garðaklettur, Almenningsvagnar Kynnisferða auk þess sem Kynnisferðir eru umboðsaðili bílaleigunnar Enterprise Rent-a-Car á Íslandi.

Kaupin verða tilkynnt Samkeppniseftirlitinu til samþykktar og stendur áreiðanleikakönnun yfir.

„Kaup okkar á Actice auka enn fjölbreytni í okkar rekstri og gefa okkur tækifæri til að veita viðskiptavinum okkar enn breiðara vöruúrvali og einstaka upplifun í íslenskri náttúru. Við hlökkum til að fá Hörpu og Harald, ásamt þeirra frábæra starfsfólki, til liðs við okkar sterka og fjölbreytta hóp starfsmanna,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, í tilkynningu.

Þar er haft eftir eigendum Actice að síðustu sjö ár hafi verið spennandi og viðburðarrík og þeir séu þakklátir starfsfólki og viðskiptavinum.

„Nú tekur við nýr kafli hjá okkur með Kynnisferðum og í sameiningu höldum við áfram því góða starfi sem við höfum af einlægni sinnt frá upphafi. Activity Iceland verður nýjasti hlekkurinn í frábærri heild, það eru spennandi tímar framundan og mörg tækifæri sem bíða okkar undir Icelandia regnhlífinni,“ segja þau Haraldur, Harpa og Guðjón.

Haraldur, Harpa og Guðjón hjá Actice.
Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …