Samfélagsmiðlar

Besta nýja flugfélagið

Birgir Jónsson, forstjóri Play, tók á móti verðlaununum í gær.

Play hefur verið valið besta nýja flugfélagið af CAPA, Center for Aviation, sem eru alþjóðleg samtökum flugmál. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Gíbraltar í gærkvöldi en Birgir Jónsson, forstjóri Play, er á staðnum og veitti þeim viðtöku.

„Í rökstuðningi fyrir valinu segir að Play hafi skarað fram úr með viðskiptamódeli sínu sem byggist á að flytja farþega á milli Bandaríkjanna og Evrópu með hagkvæmlega staðsetta heimahöfn á Íslandi. Play hafi einnig sýnt ráðdeild með því að teygja sig ekki of langt, heldur halda sig við sparneytnar og hagkvæmar Airbus A320/321neo farþegaþolur sem henta einstaklega vel á þessum flugleggjum,“ segir í tilkynningu.

Þar er jafnframt skrifað að í rökstuðningi CAPA segir að stjórnendur Play hafi hafi staðsett fyrirtækið vel fyrir framtíðina með áherslu á stafrænar lausnir og sjálfbærni sem einum af grunnstoðum fyrirtækisins. Eins hafi íslensk flugfélagið sýnt mikla seiglu á krefjandi tímum með því að skila rekstrarhagnaði á þriðja ársfjórðungi 2022.

„Að stofna nýtt flugfélag er nógu erfitt fyrir, en að gera það í svo krefjandi árferði með eins góðum árangri er einstakt. Það er því með mikilli ánægju sem CAPA hefur valið Play sem besta nýja flugfélagið árið 2022,“ segir Marco Navarria, talsmaður hjá CAPA, í tilkynningu frá CAPA.

„Það er afar ánægjulegt að fá svona alþjóðlega viðurkenningu á því sem við erum að gera og því frábæra starfi sem starfsfólk Play hefur unnið við krefjandi aðstæður. Þetta er gott veganesti til að fara með inn í komandi ár og veitir okkur aukinn kraft til að halda áfram að gera vel og halda áfram að byggja upp félag sem mun reynast ferðamönnum góður og hagkvæmur kostur,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

Nýtt efni

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …