Samfélagsmiðlar

Gera ráð fyrir tvöfalt fleiri ferðum til Íslands í vor

Lufthansa er stórtækt á flugvellinum í Frankfurt.

Þegar staðan í Covid-19 faraldrinum var hvað verst þá var Lufthansa eina flugfélagið sem hélt úti ferðum milli Íslands og Þýskalands. Og þessar ferðir Lufthansa frá Frankfurt nýttu sér ekki eingöngu þeir sem áttu erindi héðan út í heim heldur líka inn- og útflytjendur. Í þotunum var nefnilega meiri frakt en áður hafði verið í Íslandsflugi þýska félagsins.

Þegar ástandið í heimsfaraldrinum skánaði tók Icelandair upp þráðinn í flugi til Þýskalands og Berlín hefur verið hluti af leiðakerfi Play frá því að félagið fór í loftið sumarið 2021.

Og þrátt fyrir tíðar ferðir íslensku flugfélaganna milli Íslands og Þýskalands í dag þá sjá stjórnendur Lufthansa tækifæri til að bæta verulega í nú í vor. Lufthansa gerir nefnilega ráð fyrir daglegum ferðum hingað frá Frankfurt um leið og sumaráætlunin hefst í lok mars en nú í vetur eru ferðirnar fjórar í viku.

Með þessari viðbót tvöfaldast framboðið frá því sem var í apríl og maí í ár þegar þotur Lufthansa flugu aðeins 28 ferðir hingað frá Frankfurt samkvæmt talningu Túrista.

Til viðbótar þá gerir Lufthansa ráð fyrir að halda óbreyttum takti flugi hingað frá Munchen frá vori og fram á haust með tveimur ferðum í viku.

Dótturfélag Lufthansa, Eurowings, mun svo halda úti flugi til Keflavíkurflugvallar frá og með lokum maí og þá frá bæði Hamborg og Dusseldorf. Eurowings verður eitt um flug frá þeirri síðarnefndu til Keflavíkurflugvallar en Niceair ætlar að halda út flugi þaðan til Akureyrar.

Í Hamborg stefnir í óvenju harða samkeppni því nú ætlar Play að fljúga til borgarinnar og þar með skora á Icelandair og Eurowings.

Það má svo rifja upp í þessu samhengi að á árum áður nýtti Lufthansa helst næturnar til að fljúga til og frá Íslandi. Árið 2015 var breytt kúrs og lagt í hann til Keflavíkurflugvallar um miðjan dag sem hentaði miklu betur tengifarþegum frá Kína. Og eftirspurnin eftir Íslandsflugi meðal kínverskra farþega kom stjórnendum Lufthansa á óvart líkt og fram kom í viðtali Túrista við þáverandi framkvæmdastjóra þýska félagsins.

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …