Samfélagsmiðlar

Íslensku félögin sitja ein að Prag

Segja má að stjórnendur Icelandair og Play sjái tækifærin í Tékklandi með ólíkum hætti. Icelandair fór þó flatt á fjárfestingu sinni í Tékklandi á sínum tíma.

Moldá rennur í gegnum Prag og þar hefur Karlsbrúin lengi gert borgarbúum kleift að komast milli borgarhluta.

Czech Airlines hefur um langt árabil haldið úti ferðum milli Íslands og Prag frá vori og fram á haust og á tímabili spreytti tékkneska félagið sig einnig á áætlunarflugi hingað frá Kaupmannahöfn. Þotur Czech Airlines munu hins vegar ekki sjást við Keflavíkurflugvöll á næsta ári því starfsemi þessa fimmta elsta flugfélags heims takmarkast í dag við áætlunarflug frá Prag til Parísar.

Þetta er mikil breyting frá því sem var enda bauð Czech Airlines á sínum tíma upp á tíðar ferðir frá Václav Havel flugvelli í Prag til fjölda áfangastaða. Félagið var hins vegar í gjaldþrotameðferð stóran hluta af heimsfaraldrinum en hélt þó áfram að fljúga til Íslands, bæði sumarið 2020 og 2021. Á því verður þó ekki framhald á nýju ári.

Þrátt fyrir brotthvarfið þá verður framboð á flugi héðan til Prag töluvert. Play tekur upp þráðinn í ferðum sínum til borgarinnar í vor og Icelandair ætlar í fyrsta sinn að bjóða upp á áætlunarflug Prag. Stjórnendur þess síðarnefnda sjá greinilega töluverð tækifæri í Tékklandi nú þegar Czech Airlines er varla nema skugginn af sjálfu sér. Þotur Icelandair munu því fljúga fjórum sinnum í viku til Prag og geta farþegar á leið milli Norður-Ameríku og Tékklands nýtt sér ferðirnar með einföldum hætti.

Stjórnendur Play meta stöðuna með öðrum hætti því þar verða aðeins í boði tvær ferðir í viku og tímasetningarnar hentar illa fyrir tengifarþega, nema þeim Tékkum sem nenna að eyða nóttinni í Leifsstöð á leiðinni yfir hafið.

Þó Icelandair stígi nú sín fyrstu skref í áætlunarflugi til Prag þá var fyrirtækið stórtækt í Tékklandi á sínum tíma. Árið 2007 keypti Icelandair Group áttatíu prósent hlut í tékkneska leiguflugfélaginu Travel Service sem þá var stærra flugfélag en það íslenska.

Þetta reyndist illa tímasett fjárfesting og strax í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 seldi Icelandair meðeigendum sínum í Travel Service stórn hlut og ári síðar tóku kröfuhafar Icelandair hlutinn yfir að mestu.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …