Af þeim sjö norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá var Icelandair það eina sem hækkaði í vikunni sem nú er á enda.
Gengi hlutabréfa í hinum sex lækkaði og mest í norsku nýliðunum Norse og Flyr eða um fimm af hundraði eins og sjá má hér fyrir neðan. Þessi tvö kynntu einmitt um samstarf í vikunni um sölu á farmiðum í gegnum bókunarkerfi hins íslenska Dohop og þar með geta farþegar í Ameríkuflugi Norse bókað tengiflug með Flyr við komuna til Evrópu.