Samfélagsmiðlar

Play ætlar að fljúga til Varsjár

Flugfélagið Play býður nú flugmiða til Varsjár, höfuðborgar Póllands, þar sem Ísland hefur opnað sendiráð. Töluvert framboð hefur verið á flugi milli Póllands og Íslands árið um kring á vegum Wizz, sem flogið hefur til Varsjár og annarra borga. Um 20 þúsund Pólverjar búa á Íslandi.

Fyrsta flugið Play til Varsjár verður 3. apríl 2023 en flogið verður tvisvar í viku til loka októbermánaðar. Nýtt sendiráð Íslands í Varsjá var einmitt opnað í gær 1. desember. Sendiherra Íslands í Póllandi er Hannes Heimisson. Við opnunina ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra Íslands, mikilvægi sendiráðsins fyrir aukna samvinnu ríkjanna á sviði sjávarútvegs, orkumála og ferðaþjónustu.

Í fréttatilkynningu um flugið til Varsjár segir Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Þetta er spennandi skref sem við tökum hjá PLAY með því að fljúga til Varsjár. Þetta er borg sem lætur engan ósnortinn og ég er sannfærður um að hún mun ekki aðeins höfða til þeirra rúmlega 20 þúsund Pólverja sem búa á Íslandi heldur einnig Íslendinga sjálfra. Þetta er fimmti nýi áfangastaðurinn sem við kynnum á skömmum tíma sem byggir undir metnaðarfullt leiðakerfi sem við munum bjóða upp á árið 2023.“

Um 10 milljónir ferðamanna heimsóttu Varsjá árið 2019 fyrir heumsfaraldurinn, um þriðjungur voru útlendingar. Bretar voru fjölmennastir í þessum hópi en næstir komu Þjóðverjar og Úkraínumenn.

Nýtt efni

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …

Í marsmánuði fór fjöldi erlendra ferðamanna í Japan í fyrsta skipti yfir 3 milljónir, samkvæmt tölum sem birtar voru í síðustu viku. Um 2,7 milljónir komu í febrúar. Auðvitað nýtur japönsk ferðaþjónusta nú uppsafnaðrar löngunar erlendra ferðamanna á að heimsækja loks Japan eftir langvarandi lokun og ferðahindranir í tengslum við Covid-19 en það er ekki …

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands var heiðraður á ársfundi Meet in Reykjavik í gær. Hann leiddi til sigurs umsókn Íslands um að fá ráðstefnuna „International Geoscience and Remote Sensing Symposium (IGARSS)“ til Reykjavíkur í júlí 2027. Gert er ráð fyrir að 2.500 erlendir vísindamenn og fagfólk á sviði fjarkönnunar frá öllum heimshornum sæki ráðstefnuna …

United Airlines tilkynntu í gær um betri afkomu en vænst var á öðrum ársfjórðungi. Þetta kemur í framhaldi af því að tapið á fyrsta fjórðungi var minna en óttast hafði verið. Megin ástæða þess að vel gengur er einfaldlega mikill áhugi á ferðalögum. Hlutabréf í United hækkuðu strax í fyrstu viðskiptum eftir að tilkynnt var …

Japanskir bílaframleiðandur hafa dregist aftur úr nýrri fyrirtækjum á borð við bandaríska Tesla og kínverska BYD í þróun rafbílasmíði. En menn velta því fyrir sér hvort japanskir framleiðendur á borð við Toyota og Nissan verði ekki fljótir að vinna upp það forskot - og jafnvel ná forystu - með þróun nýrrar gerðar rafhlaðna, sem vonir …