Rúmlega önnur hver brottför frá Keflavíkurflugvelli í nóvember var á vegum Icelandair og fimmtán önnur félög skiptu með sér hinum helmingnum.
Í þeim hópi er Play með hæstu hlutdeildina og saman standa íslensku félögin tvö undir bróðurparti umferðarinnar eða sjö af hverjum tíu flugferðum eins og sjá má hér fyrir neðan.
Af erlendu félögunum eru Easyjet stærst með 10 prósent en hlutdeild Wizz Air nemur sjö prósentum. Í fimmta sæti er SAS en vægi þess félags tvö prósent.