Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa tilkynnt um bilun í tölvubúnaði sem sendir frá sér viðvarnir og veitir flugáhöfnum leiðbeiningar og upplýsingar fyrir flug.
Bilunin veldur því að ekki er hægt að uppfæra upplýsingar sem varða flug og aðstæður á flugvöllum. Um 400 flugferðum var frestað í morgunsárið vestra vegna bilunarinnar. Þetta ástand hefur víðtæk áhrif á flug í Bandaríkjunum.
Leitað er að orsökum bilunarinnar og unnið er að þvi að endurræsa umrætt kerfi, samkvæmt upplýsingum frá FAA.