Samfélagsmiðlar

EasyJet gerir ráð fyrir hagnaði á árinu

Breska flugfélagið EasyJet segir útlit fyrir að afkoman á árinu 2023 fari fram úr almennum væntingum á markaði sem skekinn er af margvíslegum efnahagslegum og póltískum vandamálum.

easyjet gatwick

Almennt hafa menn ekki verið bjartsýnir um efnahagshorfur í Bretlandi á þessu ári. Enn tekst efnahagslífið á við eftirköst útgöngunnar úr Evrópusambandinu og kórónaveirufaraldursins. Almenningur þarf í daglegu lífi að kljást við hækkað verð á nauðsynjavörum og afleiðingar verkfalla. 

Þrátt fyrir efnahagslega óáran með tveggja stafa verðbólgutölu virðast Bretar ekki reiðubúnir að fórna sumarfríinu sínu. Þetta merkja lággjaldaflugfélög eins og EasyJet, sem tilkynnti í dag um að bókanir á flugi í sumar lofuðu svo góðu að vænta mætti þess að flugfélagið skilaði hagnaði í ár. Tap varð af rekstrinum á síðasta ári en afkoman batnaði eftir því sem á það leið. 

EasyJet Holidays hefur uppfært spár sínar um vöxt á árinu og býst við mun fleiri farþegum en menn höfðu áður þorað að spá fyrir um. Mikil sala hefur verið á ferðum til grísku eyjanna, Spánar og fleiri áfangastaða að undanförnu. EasyJet býr sig undir miklar annir næsta sumar og keppst er við að ljúka ráðningum á starfsfólki til að koma í veg fyrir álíka truflanir og urðu síðasta sumar á flugvöllum. Þessi batnandi afkoma ætti að stuðla að hækkun hutabréfa í EasyJet og nálgast það gengi sem var fyrir faraldurinn.

Þessi tíðindi sem Reuters-fréttaveitan hefur eftir forráðamönnum EasyJet koma í kjölfar álíka frétta af afkomu og horfum hjá írska keppinautnum Ryanair. 

Nýtt efni

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …