Samfélagsmiðlar

Fella niður aðra flugleið milli Íslands og Ítalíu

Íslendingar fjölmenntu til Ítalíu í fyrra en nú hefur framboð á flugi milli landanna tveggja dregist saman.

Þegar rekstur Wow Air stöðvaðist fyrr þremur árum síðan þá varð Wizz Air næst umsvifamesta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli á eftir Icelandair. Stjórnendur þessa ungverska flugfélags nýttu svo Covid-19 faraldurinn til að opna nýjar starfsstöðvar í vesturhluta Evrópu og sérstaklega á Ítalíu.

Óhætt er að segja að íslensk ferðaþjónusta hafi notið góðs af því enda hélt Wizz Air úti áætlunarferðum hingað til lands frá fjórum ítölskum borgum í fyrra. Það skýrir að miklu leyti þá staðreynd að hingað komu fleiri ítalskir ferðamenn á síðasta ári en dæmi eru um. Að sama skapi streymdu Íslendingar til Ítalíu.

Wizz Air lagði hins vegar niður flugið hingað frá Napólí í lok október í fyrra og nú gerir sumaráætlun félagsins ekki lengur ráð fyrir flugi frá Feneyjum til Keflavíkurflugvallar. Áður voru í sölu tvær brottfarir í viku frá og með byrjun apríl.

Ekkert annað flugfélag hefur haldið úti áætlunarflugi hingað frá Feneyjum og Napólí og því útlit fyrir að beint flug héðan til þessara borga heyri sögunni til. Í það minnsta næstu misseri.

Þrátt fyrir þennan niðurskurð þá ætlar Wizz Air að halda áfram að fljúga þotum sínum til Íslands frá bæði Mílanó og Róm. Félagið keppir þá við Icelandair í Íslandsflugi í báðum þessum borgum og auk þess flýgur Easyjet hingað frá Mílanó. Íbúar í þessari næst fjölmenntustu borg Ítalíu geta því valið úr ferðum þriggja flugfélaga til Íslands.

Til viðbótar við þetta úrval þá býður Úrval-Útsýn uppá flug til Verona og Play flýgur til Bologna á sumrin.

Þess bera að geta að Túristi hefur óskað eftir skýringum á fyrrnefndum breytingum frá Wizz Air en ekki fengið.

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …