Um 400 brottförum frá bandarískum flugvöllum var frestað fyrr í dag vegna bilunar í tölvubúnaði sem sendir frá sér viðvarnir og veitir flugáhöfnum leiðbeiningar og upplýsingar fyrir flug. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur farið fram á að fá skýringar á biluninni um leið og þær liggja fyrir að því fram kemur í fréttum vestanhafs.
Ennþá er leitað eftir orsökum bilunarinnar en klukkan tvö að íslenskum tíma var opnað á ný fyrir umferð um flugvelli vestanhafs eins og fram kemur í tísti frá bandarískum samgönguyfirvöldum.
Ferðir dagsins frá Keflavíkurflugvelli til Bandaríkjanna í dag eru því allar á áætlun en samtals eru átta brottfarir á dagskrá seinnipartinn.
Update 5: Normal air traffic operations are resuming gradually across the U.S. following an overnight outage to the Notice to Air Missions system that provides safety info to flight crews. The ground stop has been lifted.
— The FAA ✈️ (@FAANews) January 11, 2023
We continue to look into the cause of the initial problem